Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni

Dásamlegt hús á Spáni til útleigu

Photos from Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni 's post 05/07/2024

Dream Hills klikka seint 🇪🇸❤️☀️

02/08/2023

Það geta allir, á öllum aldri, notið sín í sundlauginni og í sólinni í dásamlegu Dream Hills 🫶🇪🇸☀️

02/08/2023

Það geta allir á öllum aldri notið sín í sólinni í Dream Hills 🫶

Photos from Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni 's post 28/06/2023

Það er aðeins betra veður á Spáni en á Íslandi 🇪🇸☀️

Photos from Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni 's post 27/06/2023

Endurbótum er alveg að ljúka í dásamlegu Dream Hills á Spáni. Hversu næs er að sitja úti á kvöldin og spila eða chilla uppi á þaksvölum og njóta lífsins/sólarinnar á Spáni 🇪🇸☀️

Húsið verður tilbúið til útleigu frá 1. september nk. Þeir sem ætla að kikja í golf eða bara til að sjá ☀️

Photos from Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni 's post 27/06/2023

Herbergin tvö á efri hæðinni að verða tilbúin! Ný rúm, náttborð, loftkæling o.fl. Hægt að hugga sig í kósý sófanum yfir góðri mynd þegar maður fær nóg af sólinni 🫶☀️🇪🇸❤️

26/06/2023
26/06/2023

Sjónvarpsholið sem gott er að nota þegar það verður of heitt úti eða bara á kvöldin.

Photos from Dream Hills í Orihuela, Alicante, Spáni 's post 26/06/2023
13/06/2023

Húsið er laust til leigu frá 1. september nk.! 🇪🇸☀️ Fullkomið að fara út í golf og njóta ☀️

13/06/2023

Götukort af húsinu El Capitan í Deam Hills hverfinu í Orihuela Alicante.

12/06/2023

Fjarlægðin frá húsinu yfir í almenningssundlaugina.

12/06/2023

Glæsilegt og fjölskylduvænt hús á Spáni til leigu. Húsið er staðsett á frábærum stað á Orihuela Costa svæðinu sem er í 45-50 mínútna aksturs fjarlægð frá flugvellinum á Alicante.

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi sem eru öll með nýju hjónarúmi (180x200 cm) en auk þess er nýr hornsófi í sjónvarpsholi þar sem tveir geta sofið svo alls geta átta fullorðnir gist í húsinu. Þá er eitt ferðarúm í húsinu fyrir ungt barn. Herbergjaskipan er með þeim hætti að eitt svefnherbergi er á jarðhæð ásamt svefnsófa í sjónvarpsholi og minna baðherberginu. Tvö svefnherbergi eru á annarri hæð hússins ásamt stærra baðherberginu.

Í húsinu er þægileg borðstofa með borðstofuborði og átta borðstofustólum. Þar við hliðina er sjónvarpshol með nýjum hornsófa (sem einnig er svefnsófi) og 75“ flatskjá þar sem hægt er að nálgast allar helstu streymisveiturnar. Eldhúsið er fullbúið en hægt er að ganga út í garðinn út frá eldhúsi. Þar er einnig uppþvottavél, örbylgjuofn og baunakaffivél.

Í húsinu eru tvö baðherbergi. Í því minna (sem er á jarðhæð) er sturta en sturta og baðkar er í því stærra (sem er á annarri hæðinni).

Þráðlaust net og loftkæling er í öllu húsinu. Kolagrill er í garðinum.

Útiaðstaðan er mjög góð við húsið. Þar er steypt borð og steyptir bekkir með yfirbyggingu þar sem hægt er að njóta matar og drykkjar í forsælu. Einkasundlaugin er þar beint á móti ásamt útisturtu. Almenningssundlaug er innan við 50 metra frá húsinu, þeir sem vilja nýta sér þá aðstöðu, en þar er einnig sólbaðsaðstaða. Þá er einnig góð sólbaðsaðstaða bæði í garðinum við einkasundlaugina og einnig á stórum svölum sem útgengt er fá öðru svefnherberginu á 2. hæð hússins. Þá eru einnig stórar þaksvalir, sem eru að hluta til yfirbyggðar, þar sem bæði er hægt að sóla sig eða sitja í forsælu en svalirnar eru með góðum garðhúsgögnum (hornsófi og tveir sófar með þykkum sessum). Á þaksvölunum er bæði hægt að slaka á með góða bók í forsælu og/eða njóta matar & drykkjar eða bara fylgjast með sólsetrinu.

Mjög stutt er í þjónustu á borð við matvöruverslun en Aldi er í um 75 metra fjarlægð frá húsinu. Þá er einnig stutt í apótek, bari og veitingastaði eða um 700 metrar (er í Via Park 3), þá er einnig bar og verslun við hliðina á húsinu (sama húsnæði og JYSK), þar sem hægt er að kaupa alls kyns dót, t.d. uppblásið dót í sundlaugina, handklæði, sólarvarnir, spil o.fl.

Þá er öll afþreying innan seilingar eins og strandir, t.d. Playa de la Zenia og Playa Punta Prima, báðar í um í 3-4 km. fjarlægð, La Zenia verslunarmiðstöðin er í 3,5 km. fjarlægð, Go Kart braut, skemmtigarðar (bæði tívolí- og vatnsrennibrautagarðar eru nálægt), golfvellir (t.d. Villamartín Golf), vínhéröð og spænsk menning.

Hægt er að leigja húsið eftir samkomulagi í lengri eða skemmri tíma. Allar nánari upplýsingar um húsið má fá með því að senda skilaboð á Facebook/Messenger hér á þessari síðu eða með pósti á netfangið: [email protected] eða hringja í síma 787-0826.

Þrifagjald: 100 evrur. Skilið eftir við brottför. Hiti & rafmagn greiðist skv. mæli við brottför.

Ef þið viljið panta far til og frá flugvelli eða panta skyndiskutl, t.d. á veitingastaði, á ströndina eða í mollið þá mælum við með að hafa samband við Ólaf G. Ragnarsson, GSM 773-3440 (spænskt númer 642-8081-54).

Ef þið viljið leigja ykkur bíl á meðan dvöl stendur þá er einnig hægt að hafa samband við Ólaf, sjá númer hér að ofan.

Endilega sendið okkur skilaboð ef þið hafið áhuga á að leigja þetta frábæra hús okkar.

¿Quieres que tu empresa sea el Empresa De Mejoras Para El Hogar mas cotizado en Orihuela?
Haga clic aquí para reclamar su Entrada Patrocinada.

Teléfono

Página web

https://maps.app.goo.gl/D1ihKRmH4ptomF6Y8?g_st=ic

Dirección


583 Calle Lago Banõlas
Orihuela
03186
Otros Decoración del hogar en Orihuela (mostrar todas)
NIND INTERIORES NIND INTERIORES
Calle Pablo Picasso, 1
Orihuela, 03189

Decoración de interiores

Quqi Deco Quqi Deco
Orihuela, 03300

Especialista dedicado a la pintura y decoración de todo tipo de superficies.

Costa Blanca Home Staging Costa Blanca Home Staging
Alhambra 18 Local 4
Orihuela, 03189

Transformamos viviendas en hogares, sacando su máximo potencial para que puedas vender o alquilar m

Spanish Sparkles Spanish Sparkles
Los Dolses
Orihuela, 03189

Here at Spanish sparkles we can personalize any item for you glitz it up with glitter and sparkle up your life

Beds-Sofas-Bedding.com by SC Furniture, La fuente and Quesada Beds-Sofas-Bedding.com by SC Furniture, La fuente and Quesada
Calle Ramon De Campoamor Local 5
Orihuela, 03189

Retailers and Wholesalers of all household furniture, mattresses, bedding, sheets, duvets, toppers, pillows, mattress protectors, curtains towels.

Tienda Alux Mamparas Tienda Alux Mamparas
Orihuela, 03300

Venta de Mamparas Standard y a Medida. Distribuimos en toda la provincia de Alicante. Asesoramiento

Inmaculada Mompean Inmaculada Mompean
Calle Mayor 62
Orihuela, 03314

Viste tu Hogar, Vístete Tú