Svigrúm.is

Svigrúm.is

Verslunin hefur lokað, takk fyrir viðskiptin! Smávegis lager enn til sem selst á miklum afslætti, sendið skilaboð hér á Facebook ef áhugi er fyrir hendi.

Photos from Svigrúm.is's post 22/07/2024

Þessar flíkur eru enn til í nokkrum, ekki öllum, stærðum. Verð á bilinu 1.500 - 2.500 kr. plús póstsendingarkostnaður. Sendið einkaskilaboð. :)

28/04/2022

Við erum að kynna vörurnar okkar á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ í dag, til kl.17. Vöfflur og harmonikkutónlist!

Photos from Svigrúm.is's post 26/04/2022

Allt að gerast á hjúkrunarheimilinu Skjóli, biðröð í að mæla blóðþrýsting og blóðsykur, fullt af sniðugum vörum til sýnis og sölu!
Verðum á Eir á morgun og Hömrum á fimmtudag kl 15-17, öll velkomin!

20. apríl 2022 20/04/2022

Fékk smá umfjöllun í Fréttavaktinni á Hringbraut, í tilefni Heilsudaga á hjúkrunarheimilunum Skjóli, Eir og Hömrum í næstu viku.
(Byrjar á mínútu 18)

20. apríl 2022

20/04/2022

Fylgist með Fréttavaktinni á Hringbraut í kvöld klukkan 18:30 😉

Photos from Svigrúm.is's post 08/03/2022

Nýjung!

Kærleikspakkarnir eru falleg gjöf sem hægt er að senda beint heim til vinar, vinnufélaga, skólafélaga eða ættingja á Íslandi sem þú vilt sýna ástúð og umhyggju á erfiðum tímum. En svo má líka alveg kaupa Kærleikspakka til einkanota og sýna sjálri sér svolitla ástúð og umhyggju, verum góð við okkur sjálf líka!

Fyrstu Kærleikspakkarnir eru Róandi, Huggandi og Batnandi en fleiri útgáfur munu bætast við síðar. Einnig er hægt að hafa samband með séróskir.

Photos from Svigrúm.is's post 16/01/2022

15-20% afsláttur af nærfötum og sokkum út janúar, eða meðan birgðir endast.

Og Madeleine kápan er nú á 20.990, var áður á 25.990 svo nú er rétti tíminn til að næla sér í vandaða og hlýja yfirhöfn!

05/01/2022

Góðan dag og gleðilegt ár!
Þið hafið kannski tekið eftir nýjum hlekk á síðunni, Tropic Skincare, en þar segi ég frá ástríðu minni fyrir þessum frábæru húð- og snyrtivörum. Þetta er lítið hliðar-verkefni sem ég hef sinnt fyrst og fremst í Facebook hópnum Tropic - ferskar og náttúrulegar húðvörur, endilega gangið í hann ef þið viljið fræðast meira!

Photos from Svigrúm.is's post 29/12/2021

Vorum að fá nýjar vörur, t.d. fleiri týpur af karlmannsbuxum, köflóttar bómullarskyrtur og herðaslár. Kíkið á www.svigrum.com

Photos from Svigrúm.is's post 29/12/2021

Ný sending var að koma svo við erum búin að bæta á lagerinn eftir frábærar viðtökur í nóvember og desember. Nú eru aftur til dökkbláar Aubrey buxur, fjarstýringar, Madeleine ullarkápur og rauðir Lindu bolir.

Auk þess fengum við glænýjar vörur, kíkið á www.svigrum.com til að skoða úrvalið!

28/12/2021

Þið sem eruð á póstlistanum, kíkið í Inboxið! Ef þið sjáið ekkert þar þá gæti fréttabréfið okkar hafa lent í ruslmöppunni. ;)

14/12/2021

Aubrey síðbuxur fyrir karla hafa fengið frábærar viðtökur og eru nánast uppseldar í bili!
Við vonum að ný sending berist fyrir jól en getum ekki lofað neinu úr þessu. Þá koma einnig aðrar týpur af karlabuxum sem gætu hentað sumum betur en þau sem hafa haft samband eru mjög ánægð með hversu klæðilegar Aubrey buxurnar eru og við erum svo glöð að heyra frá ánægðum viðskiptavinum.

Dökkbláu buxurnar eru vinsælli en þær gráu sem eru þó mjög fallega "grágrýtisgráar" að okkar mati svo við hvetjum ykkur til að gefa þeim séns líka. ;)
https://svigrum.com/products/sidbuxur-aubrey

Photos from Svigrúm.is's post 02/12/2021

Madeleine er hlý, hálfsíð kápa úr lipru ullarefni. Hún er fest að framan með riflás í stað hnappa en er skreytt fallegum tölum svo flíkin lítur út eins og hefðbundin kápa. Ermaopin eru víð og fóðrið sérstaklega "sleipt" svo auðveldara sé að renna handleggjunum í og úr ermunum.

Einstaklega falleg og eiguleg yfirhöfn, mögulega jólagjöfin handa mömmu eða ömmu í ár?

Photos from Svigrúm.is's post 01/12/2021

Við þökkum frábærar viðtökur, pantanir tóku mikinn kipp í kjölfar greinarinnar í Morgunblaðinu um helgina svo við þurfum að fara að fá aðra sendingu að utan.

Við erum einnig búin að fá ýmsar fyrirspurnir varðandi flíkur og hvetjum ykkur til að senda okkur skilaboð ef það er e-r ákveðin vara sem þið hafið áhuga á, eða vara í öðrum lit en við eigum á lager o.s.frvs. því þá getum við tryggt að það komi með næstu sendingu.

Við eigum aðeins eitt stutt líf 28/11/2021

Það kom smá viðtal við mig og umfjöllun um http://xn--svigrm-tya.is/ í laugardagsmogganum um helgina. ;)
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/11/28/vid_eigum_adeins_eitt_stutt_lif/

Við eigum aðeins eitt stutt líf „Við eigum bara eitt stutt líf, og vitum ekkert hversu mikill tími okkur er gefinn, þess vegna skiptir máli að gera það besta úr lífinu.“

Einföld sjónvarpsfjarstýring 19/11/2021

Jólagjöfin í ár???

Þægileg sjónvarpsfjarstýring með stórum, litsterkum tökkum til að slökkva, hækka og lækka og skipta um stöð. Þarf eitthvað meira?

Memo24 fjarstýringin getur komið í stað tveggja, hægt er að sameina skipanir úr sjónvarpsfjarstýringu og myndlykilsfjarstýringu til að einfalda lífið fyrir þau sem þess þurfa, jafnvel bara börnin á laugardagsmorgnum!

https://svigrum.com/products/einfold-sjonvarpsfjarstyring

Einföld sjónvarpsfjarstýring Þægileg sjónvarpsfjarstýring með stórum, litríkum tökkum til að slökkva, hækka og lækka og skipta um stöð. Þarf eitthvað meira?Memo24 fjarstýringin getur komið í stað tveggja, hægt er að sameina skipanir úr sjónvarpsfjarstýringu og myndlykilsfjarstýringu til að einfalda l....

Svigrúm.is 17/11/2021

Afsakið töfina en vörurnar eru komnar í hús og hægt að fara að panta!!!
www.svigrum.com

Svigrúm.is Þægileg föt sérstaklega hönnuð fyrir fólk með heilabilun, hreyfiskerðingu eða verkstol. Hnappalaus föt með riflásum. Auðvelt að klæðast.

02/11/2021

Vegna seinkunar hjá tollinum verða vörurnar ekki tilbúnar í sölu á morgun en hins vegar ætlum við samt að halda okkur við dagsetninguna 3/11 og opna vefinn klukkan 3:11 e.h.!

Þá getið þið að minnsta kosti skoðað úrvalið, stærðirnar og verðin. Við látum ykkur svo vita um leið og fatnaður er kominn í hús og tilbúinn til afhendingar. Vona að þið fyrirgefið okkur þessa byrjunarörðugleika. xx

Photos from Svigrúm.is's post 17/10/2021

Við kynnum með stolti fatnaðinn frá The Able Label, í fyrsta sinn á Íslandi!

Falleg og klæðileg föt sem auðvelt er að klæða sig í og úr, handa fólki sem mætir áskorunum í daglegum athöfnum vegna hreyfiskerðingar og/eða verkstols.

Í stað hnappa og rennilása eru faldir riflásar á flíkunum svo óþarfi er að smeygja t.d. bolum yfir höfuð eða baksa við tölur og hnappa.

Netverslunin http://xn--svigrm-tya.is/ opnar miðvikudaginn 3. nóvember kl. 15:11. Fylgist með!

The Able Label | KMTV 21/09/2021

Stutt sjónvarpsfrétt þar sem Katie Ellis segir frá kveikjunni að stofnun þessa frábæra fatamerkis, en amma hennar var með Parkinson's sjúkdóminn og þoldi ekki að þurfa að fá aðstoð mannsins síns til að klæða sig í föt.

The Able Label | KMTV The Able Label adaptive clothing to make dressing easier for women with dressing difficulties, perhaps due to arthritis, parkinson's, MS, alzheimer's or havi...

Want your business to be the top-listed Clothing Store in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Address


Reykjavík
Other Apparel & Clothing in Reykjavík (show all)
Eirberg Eirberg
Stórhöfði 25
Reykjavík, 110

Á meðan verslun okkar í Kringlunni er lokuð bjóðum við ykkur velkomin í verslun okkar að Stórhöfða 25. - Næg bílastæði. Vefverslunin býður fría heimsendingu þegar verslað er fyrir...

Dimma Hornid/The Dark Corner Dimma Hornid/The Dark Corner
Reykjavík, 104

Dimma Hornid/ The Dark Corner is a small online horror shop located in Reykjavík Iceland

Ýmislegt til sölu Ýmislegt til sölu
Reykjavík, 101

G. Skúladóttir kjólaklæðskeri G. Skúladóttir kjólaklæðskeri
Hraunbær 78
Reykjavík, 110

Sérsaumur og fatabreytingar. Sérsaumur á gallabuxum extra spennandi.

Asja Studios Asja Studios
Reykjavík, 105

Buymychic.is Buymychic.is
Óðinsgata 8b
Reykjavík, 101

Óðinsgata 8b, 101 Reykjavík. Opnunartími Þri-Lau / 12-18 Hátíska í hring ♻️

Töff Socks Töff Socks
Krókháls 6
Reykjavík, 110

Töff Merkt er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir persónulegar vörur. Myndasokkar, bolir og peysur fyrir þig.

Scrubs.is Scrubs.is
Reykjavík, 104

Vinnufatnaður fyrir heilbrigðisstarfsfólk

Scrubs.is Scrubs.is
Stórhöfði 17
Reykjavík, 110

Scrubs.is selur gæða vinnufatnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk ásamt skemmtilegum aukahlutum fyrir alla

ILSE JACOBSEN • Hornbæk ILSE JACOBSEN • Hornbæk
Laugavegur 33
Reykjavík, 101

Macron Sports Hub Reykjavík Macron Sports Hub Reykjavík
Skútuvogur 11
Reykjavík, 104

Ítalskur sportfatnaður

Modify Boutique Modify Boutique
Reykjavík, 107

Hearts, Pom Poms and Glitter. Rad Handmade Chokers to Modify your soul