Beco - Ljósmyndavörur og þjónusta

Beco er sérhæft ljósmynda- þjónustufyrirtæki. Við erum með vörur og þjónustu fyrir bæði áhuga- og atvinnuljósmyndara sem og kvikmyndaiðnaðinn.

08/05/2024

Kæru viðskiptavinir!
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að tækjaleigan okkar er opin á ný. Tækjalistinn á heimasíðunni er ekki tæmandi og viðbætur eru væntanlegar á næstunni.

Ekki hika við að hafa samband!

12/03/2024

Leica Q3 er komin á lager hjá okkur!
Verð 999.800,- m/vsk

Verið hjartanlega velkomin til okkar á Langholtsveginn!

05/04/2023

Páska kanínan er mætt í Beco 🐇
Ætla ekki allir að vera duglegir að taka myndir í páskafríinu?
Í dag (miðvikudagurinn 5.4.23) er síðasti dagurinn til að kíkja við og grípa það sem vantar til að ná hinni fullkomnu páska mynd því við ætlum í páskafrí 🥳

Páska opnun:
Miðvikudagurinn 5 apríl: 9-17
Fimmtudagurinn 6. apríl: lokað
Föstudagurinn 7. apríl: lokað
Laugardagurinn 8. apríl: lokað
Sunnudagurinn 9. apríl: lokað
Mánudagurinn 10. apríl: lokað
Þriðjudagurinn 11. apríl: 9-17

Hlökkum til að sjá sem flesta í dag og óskum ykkur öllum gleðilegra páska 🐣

Photos from Beco - Ljósmyndavörur og þjónusta's post 07/03/2023

2 fyrir 1 af völdum Permajet pappír🤩🪩🪩

14/02/2023

Fjölskyldur þeirra hafa verið í stríði í áratugi en engu að síður finna þau ástina og láta ekkert stoppa sig 💘

Við kynnum til leiks Rómeó & Júlíu fyrir ljósmyndarann.
Með hlutverk Rómeó fer hinn landsþekkti Canon EOS R6 og á móti honum sem Júlía leikur hin geysivinsæla Nikon Z5. 📷📸

Við óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegan Valentínusardag og vonum að þið fagnið ástinni í dag. 💕

Myndavélar og aukahlutir hafa alltaf verið vinsæl gjöf fyrir ástina því hvað er mikilvægara en að fanga minningarnar á mynd. ❤️

Photos from Beco - Ljósmyndavörur og þjónusta's post 10/02/2023

Anton okkar allra besti á afmæli í dag!!🎂

Hann Anton veit sko allt um myndavélar og er því oft kallaður ‘Toni sem veit allt um myndavélar maðurinn’ og ef þið sjáið hann í dag þá er hann örugglega að ‘rigga einhverju upp’ þannig ekki trufla hann😉
(megið samt alveg trufla hann smá til að óska honum til hammó með ammó😚)

Innilega til hamingju með daginn Toni okkar og við vonum nú að þú klárir ekki alla afmæliskökuna sem þú komst með fyrir okkur😋❤️

09/02/2023

Ein stærsta spurning mannkyns sögunnar hefur verið "viltu hann hristann eða hrærðan" #007 🍸
Núna er stóra spurningin viltu myndbandið hrist eða stöðugt.

Godox ZP1 sér um að halda símanum alveg stöðugum þegar þú tekur upp myndband.
Frábært tæki til að taka myndböndin upp á næsta stig og sækja hart að Hollywood 🎬📽️

08/02/2023

Klemmur í öllum stærðum og gerðum fyrir öll verkefni eða tilefni 😀

07/02/2023

Nú er búið að fjúka í flest skjól síðustu daga.
Með miklu óveðri fylgir oft mikil drulla á myndavélar og linsur, þá sérstaklega þegar búnaðurinn er notaður utandyra. 🤣
Við eigum því miður ekki rúðu p**s fyrir linsur á lager en við eigum nóg af linsuklútum og hreinsi settum til að þrífa búnaðinn. 👋😀

06/02/2023

Elskar þú Star Wars roleplay eða vantar þig meðfærilega lýsingu fyrir myndir og myndbönd þá er Godox TL60 ljósið fyrir þig!

Við getum hiklaust mælt með Godox TL60, þetta snilldar ljós er alveg búið að heilla okkur upp úr skónum og margar af okkar bestu myndum hafa verið lýstar með TL60. 📸

Þetta er RGB ljós sem þýðir að þú getur haft það í hvaða lit sem er, það bíður upp á allskonar effekta eins og t.d. þrumur og eldingar, sjónvarp, kertaljós, sjúkrabíll, lögreglubíll og margt flr. ⚡🚨💡🕯️

Sjón er sögu ríkari, verið velkomin til okkar á Langholtsveginn og skorið á Darth Anton í skylmingar 🤺 🤣

03/02/2023

Ert þú jafn þreytt/ur og Anton á veðrinu og kemst ekki til útlanda.
Ekki örvænta við eigum green screen í öllum stærðum og gerðum, með þeim er lítið mál að láta alla á Instagram halda að þú sést í útlöndum. 🤣

Hugurinn ber þig hálfa leið ✈️

02/02/2023

Það vita ekki allir að Beco býr yfir fullkomnasta og flottasta Canon myndavéla verkstæði landsins...það er reyndar eina Canon myndavéla verkstæði landsins en það er aukaatriði. 📷
Hefur myndavélin þín bilað á síðustu árum og er núna 10x betri eftir að hún kom úr viðgerð, ástæðan fyrir því er Óskar, hetjan sem ekki allir þekkja.🎖️

Við treystum engum betur fyrir græjunum okkar en Óskari, við erum nokkuð viss um að ef við myndum láta hann fá niðursuðudós, hársprey og gullfisk þá gætum við sent fyrsta köttinn til tunglsins því Óskar getur smíðað og lagað allt. 🔧
Hann sér einnig um hreinsanir hjá okkur svo ef það er blettur á myndflögunni rúllaðu þá við og fáðu myndavélina til baka betri en nýja.📸

01/02/2023

Gleðilegan febrúar!💗
Í tilefni þess bjóðum við upp á 25% afslátt af völdum vörum💥
Komdu við á Langholtsveg 84 og gerðu góð kaup!😍😍

Opið frá 9-5✨

24/01/2023

Viltu taka mynd? 📷
Viltu taka upp myndband? 🎥
Viltu líta vel út a Zoom fundi? 💻
Viltu sjá makup-ið vel þegar þú ert að farða? 💄
Viltu hringljós? 💫💡

Hringljós gefur mjög jafna og fallega birtu og er mjög einfalt í notkun og hentar því vel í mörg tilefni.
Við eigum hringljós í öllum stærðum og gerðum á lager! 👏😀

23/01/2023

Einn eftirsóttasti hluturinn í ljósmyndun er góð glugga birta og stóran part af árinu varir þessi góða glugga birta í 15.37 sekúndur á dag 🤣
Við höfum því ákveðið að henda í smá tilboð, með hverjum seldum LED lampa þá færst 30% afsláttur af Caruba 95cm Quick Assembly softboxi.
Verið velkomin til okkar á Langholtsveg 84 og skoðið úrvalið af LED ljósum. 💡

Það er vert að taka fram að LED ljós virka bæði fyrir myndavélar og síma. 📷📱

Timeline photos 20/01/2023

Gleðilegan bóndadag kæru bændur❤️
Í tilefni dagsins bjóðum við ykkur 10% afslátt af öllum rafhlöðum svo kallinn verði nú í stuði á þorranum😉

18/01/2023

Eru ekki allir byrjaðir að hita upp fyrir leikinn á eftir 🤾‍♂️
Við erum heldur betur spennt og hlökkum til að sjá strákana vinna 🏆

Erum mjög forvitin, hversu margir hafa heyrt um Grænhöfðaeyjar fyrir daginn í dag 🧐

Bannað að dæma inniskóna okkar 🫣

16/01/2023

Profoto Connect Pro er komin fyrir Leica.
Nú er fullkomna tvennan að eiga Leica og Billingham orðin fullkomna þrennan Leica, Billingham og Profoto.
Það vill svo skemmtilega til að öll gullna þrennan fæst í Beco 😍

Timeline photos 13/01/2023

Hefur þú mikið að segja? Ertu eins og Anton okkar og hættir ekki að tala?🎤
Rode Podmic er mjög góður að meðtaka hljóð og fyrir litlar 20.900 kr. hlustar hann á þig tala allan daginn 😂

Eigum flestar lausnir fyrir hljóð til á lager: https://buff.ly/3GIvuX2

Timeline photos 12/01/2023

Frá örófi alda hafa menn deilt um hluti, þeir hafa kannski alltaf verið að deila um carbon fiber vs. ál þrífætur en það hefur verið heitt umdeilu efni í ljósmyndageiranum síðustu ár/áratugi.
Það eru kostir og gallar við báðar týpur og viljum við vera viss um að þú finnir rétta fótinn sem hentar þér því það er slæm aðstaða að vera með fót sem passar ekki.
Verið velkomin til okkar á Langholtsveg 84 eða sendið okkur póst á [email protected] og sérfræðingarnir okkar aðstoða þig við að finna þrífót sem hentar þínum þörfum.

Skoðaðu úrvalið 👉 https://www.beco.is/thrifaetur/

Lowepro's Workshop - Cleaning your bag | Lowepro 12/01/2023

Hérna er eitt myndband sem kemur örugglega mörgum að góðum notum þessa dagana þegar snjórinn, saltið og drullan eru í hámarki.
Viðhald á töskum og flest öllum búnaði lengir líf tímann á honum til muna svo við mælum alltaf með að þrífa allt reglulega til að fá sem besta endingu út úr búnaðnum.

Lowepro's Workshop - Cleaning your bag | Lowepro JavaScript seems to be disabled in your browser. For the best experience on our site, be sure to turn on Javascript in your browser.

Timeline photos 11/01/2023

Er biðin eftir sumrinu lengi að líða? Er lífið litlaust? Örvæntið ei!
Við erum með lausn og það er Kodak Ektar 100 filma sem gerir alla liti ríkari og hlýrri og gefur þér smávegis sól í hjarta!🌸🤗

Timeline photos 10/01/2023

Þú færð SmallRig hjá okkur!😍
Búr, l-brakcet, handföng, rail.
Klemmur, kúlur, armar, qr base og shoulder rig
(vinsamlegast syngið textann MJÖÖÖÖG HRATT)🎵
https://buff.ly/3vDvAZG

Timeline photos 09/01/2023

Er ekki komin tími á hreinsun fyrir myndavélina þína? 🧼
Við bjóðum upp á sensor hreinsun fyrir allar vélar, gamlar eða nýjar!

Verð fyrir crop sensor 8.000 kr. og full frame sensor 10.000 kr. 🙏

Vertu velkomin á Langholtsveg 84
Opið frá 9-17

Timeline photos 08/01/2023

Nú er sko rétti tíminn til að setja upp stúdíó!🤝
Við mælum með þessum vörum

Godox QS400II flass kit á aðeins 125.000 kr.
Inniheldur 2x QS400II flass lampa, 2x ljósastandar, 2x 60×60 Softbox með Bowens, Mount + Grid
https://buff.ly/3ZaV9yS

Godox SL60W Duo stöðuljósa Kit á 77.300 kr. (virkar bæði með síma og myndavél)
https://buff.ly/3WP9mjs

Bakgrunnsrúllurnar okkar koma í öllum regnbogans litum í stærð 2,72m x 11,0m á 23.500 kr.
Litir Black, Super White og Shadow Grey koma einnig í stærð 1,37 x 11,0m á 16.900 kr.
https://buff.ly/3ZaKQux

Caruba Background Support Kit á 35.900 kr. (hentar vel til að ferðast með)
https://buff.ly/3QoUx4D

Manfrotto veggkrókar 9.600 kr. og festingar 22.500 kr.
https://buff.ly/3Zhwed8
https://buff.ly/3QlCcWi

Þú færð allt í ljósmyndastúdíóið þitt hjá okkur! 😍

Timeline photos 07/01/2023

Í dag er alþjóðlegi 'leikum okkur úti' dagurinn!❄️
Þá er tilvalið að skella sér í föðurlandið og snjógallann og beint út með myndavélina að leika! Við viljum sjá afraksturinn hér í kommentum 📸 Góða skemmtun!🥰

Timeline photos 06/01/2023

Þú færð filmur hjá okkur!🎞️
Vinsælustu 35mm filmurnar okkar, Kodak Gold 200 og FujiFilm Superia X-TRA 400 eru góðar til að byrja með og henta í hvaða filmumyndavél sem er😍📸
Kodak filman er með hlýrri litatóna en FujiFilm er með kaldari, ef þú veist ekki hvort þér finnst flottara - þá skaltu bara prófa báðar😎
Verð 2.700 - 2.990 kr.✨

05/01/2023

Við erum byrjuð að taka við forpöntunum á Godox KNOWLED MG1200BI.
Einnig tökum við sérpantanir á minni lömpunum í KNOWLED línunni, hægt er að senda póst á [email protected] til að fá verð í þá lampa.
KNOWLED línan er sú allra flottasta frá Godox, hún er framleidd til að standast kröfur þeirra allra kröfuhörðustu.
Mælum með að kíkja á þetta video frá Godox, þetta seldi okkur þessa lampa svo mikið að við sendum okkur sjálf póst til að fá verðtilboð í þá.
Hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst. :D

Timeline photos 05/01/2023

Við vorum að fá Nikon Z9 aftur á lager!🙏💥
Þessi myndavél sem hefur fengið mjög góða dóma er með 45,7 megapixla upplausn, full frame myndflögu og tekur allt að 30 ramma á sekúndu. Hún er því talin vera ein sú besta fyrir atvinnuljósmyndarann😍😍

Timeline photos 04/01/2023

Nú fara norðurljósin að láta sjá sig og þá er mikilvægt að vera vel að sér búinn og með góðan búnað!📷
Við erum með úrval af góðum og stöðugum þrífótum og víðum linsum sem hjálpa þér að ná fegurð dansandi norðurljósanna!🌌😍

Want your business to be the top-listed Computer & Electronics Service in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Videos (show all)

Við erum byrjuð að taka við forpöntunum á Godox KNOWLED MG1200BI. Einnig tökum við sérpantanir á minni lömpunum í KNOWLE...
Black Friday vikan er hafin í Beco.Endilega kíkið á heimasíðuna hjá okkur og tryggið ykkur linsur, töskur, ljósabúnað og...

Address


Langholtsvegi 84
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Other Audiovisual equipment in Reykjavík (show all)
Stúdíó Andri Stúdíó Andri
Suðurlandsbraut 54
Reykjavík, 105

Hljóðver sem sérhæfir sig í hópa upptökum, Starfsamannafélög, Steggjanir, Gæsanir, Vinah?

Onoffav Onoffav
Krókháls 4
Reykjavík, 110

Onoff býður upp á ráðgjöf og uppsetningu á hljóð- og mynd búnaði fyrir heimili og fyrirtæki. Ekkert verkefni er of lítið eða of stórt.

Rafver Rafver
Skeifan 3e-f
Reykjavík, 108

Jungle.is Jungle.is
Smidjustigur 11
Reykjavík, 101

We rent out camera equipment for both professionals and amateurs. Anything from broadcast safe video cameras to GoPro´s and drones.

Nesradio Nesradio
Síðumúli 19
Reykjavík, 108

ETOS ehf. ETOS ehf.
Reykjavík, 105

ETOS ehf. er tæknifyrirtæki staðsett í Reykjavík. Megin áhersla er á fagmennsku á sviði hljóðbúnaðar, myndbúnaðar, stjórnbúnaðar, öryggisbúnaðar omfl.

Hljómsýn Hljómsýn
Ármúli 38
Reykjavík, 108

Frábært úrval af vínylplötum, plötuspilurum, hátölurum, heyrnartólum, mögnurum o.fl.

Nýja umboðið ehf Nýja umboðið ehf
Exton Efh
Reykjavík, 200,KÓPAVOGUR

Nýja umboðið selur og þjónustar hugbúnað, tæki og tól fyrir mynd- og hjóðvinnslu. Nyja u